Vefsíða fyrir Stigul, nemendafélag stærðfræði- og eðlisfræðinema. Notast við Django web framework.
ATH: þarf að skrifa nákvæmara README.md
Þessar leiðbeiningar miðast við Python 3.6.5 (þó þær ættu að virka á öðrum útgáfum af python).
Ég mæli eindregið að nota virtual environment til að vinna í síðunni, og installa þeim pökkum sem þarf inni í virtual environmentinu.
Í skel fer maður í þá möppu sem maður vill hafa virtual environmentið (t.d. á Desktop) og keyrir:
python3 -m venv ~/Desktop/stigullVenv
(einnig hægt að gera python3.6 ef að python3 er mappað á 3.5. Hægt er að sjá það með skipuninni python3 -V).
Til þess að virkja virtual environtmentið þá fer maður í stigullVenv möppuna og keyrir: source bin/activate
Þá ættu að birtast sviginn (stigullVenv) fremst í línuna í bash skelinni. Þá er maður kominn inn í virtual environmentið.
Þá er það næst að sækja projectið á github. Það má gera með skipuninni:
git clone https://github.com/TheGuitarMonkey/StigullWeb.git
Þá er (næstum) allur kóði síðunnar kominn í virtual environmentið í möppunni StigullWeb.
Svo skal fara inn í StigullWeb möppuna (ytri möppuna) og finna skjal sem heitir requirements.txt. Svo skal keyra: pip install -r requirements.txt
Þá ættu allir pakkarnir sem þarf að nota að vera komnir í virtual environmentinu.
Síðan notast við kerfi sem heitir Django.
Þegar maður vinnur í síðunni þá keyrir maður hana á local server í tölvunni sinni, og getur þá skoðað hana í vafra.
Áður en það er gert þarf að fara inn í settings.py í möppunni StigullWeb/StigullWeb/ og breyta DEBUG úr False yfir í True. MIKILVÆGT: Breyta þessu til baka áður en vefsíðan er sett á netið.
Þá keyrir maður local serverinn með: python manage.py runserver
Þá er hægt að opna síðuna í vafra, og maður getur byrjað að breyta til og bæta síðuna.
Síðan notar kerfi sem heitir Django (https://www.djangoproject.com). Mæli með að kynna sér það kerfi til að skilja hvernig síðan virkar og hvernig maður breytir hlutum. Mæli með að ganga í gegnum tutorialið á síðunni.
TODO: Skrifa betur um þetta. Linux, ssh, Apache, staðsetning server tölvu & stuff.
- Það þarf að fara inn á Linux vélina (t.d. með ssh), finna StigullWeb möppuna, gera 'git pull'
- Passa upp á að DEBUG sé False í settings.py skjalinu.
- Ef gerðar voru breytingar á módelum þarf að gera 'python3 manage.py migrate'.
- Ef gerðar voru breytingar á static skjölum (t.d. CSS) þarf að gera 'python3 manage.py collectstatic').
- Restarta apache servernum: sudo service apache2 restart
Þegar Stigull fær næst metnaðarfullan tölvuhirði/lénsherra sem vill bæta síðuna þá eru hér nokkrar hugmyndir að bætingum:
- Viðmót á admin síðu til að breyta auglýsingamyndum. Þá þarf ekki lengur að nota ssh til að breyta auglýsingum á síðunni.
- Fréttir og viðburðir sýnilegir á forsíðu
- Flottari hönnun á frétta- og viðburðavef
- Síða með lista yfir nemendur og stjórnarmeðlimi
Vefsíðugerðarmaður: Stefán Páll Sturluson